Morgunblaðið 19. júlí 2004

Samkeppnisráð setur ofan í við
Hreyfingu vegna villandi auglýsinga


Frá Liisu S.T. Johanson, eiganda Pilates Studio í Reykjavík

Samkeppnisráð fellst á það sjónarmið mitt að fyrirtækið Hreyfing hafi birt villandi auglýsingar vegna tiltekinna námskeiða og beinir þeim tilmælum til þess að fara að samkeppnislögum. Þetta er niðurstaða samkeppnisráðs í máli sem ég vísaði til þess vegna ólöglegrar notkunar Hreyfingar á orðinu Pilates í auglýsingum.
Málið varðar líkamsræktarkerfið Pilates, sem þekkt er í mörgum Evrópulöndum en er einkum útbreitt og vinsælt í Bandaríkjunum. Ég er skráður rétthafi heitisins Pilates á Íslandi, félagi í alþjóðasamtökum Pilates-kennara og eigandi Pilates Studio við Suðurlandsbraut sem rekið hefur verið í 11 ár. Þar starfa þrír af fjórum löggiltum Pilates-kennurum á Íslandi. Að jafnaði tekur 1-2 ár að fá löggildingu og nemandi verður að standast bæði skrifleg og verkleg próf að loknum mörg hundruð klukkustunda löngum og ströngum námskeiðum.
Ýmsar líkamsræktarstöðvar austan hafs og vestan hafa leikið það í seinni tíð að bjóða eftirlíkingar af Pilates. Breska tímaritið Health & Fitness sá meira að segja ástæðu til þess að vara lesendur við slíkri starfsemi í desemberhefti sínu 2003. Þegar farið var líka að auglýsa eftirlíkingar af Pilates hérlendis lét ég frá mér heyra á opinberum vettvangi og vísaði málinu jafnframt til samkeppnisyfirvalda. Niðurstaða samkeppnisráðs er ótvíræð og skýr og verður nú fylgst með að henni sé fylgt.
Samkeppnisráð leitaði álits auglýsinganefndar, ráðgjafarnefndar ráðsins. Nefndin komst að niðurstöðu sem samkeppnisráð síðan gerði að sinni og beindi jafnframt til Hreyfingar að ,,taka skýrt fram í öllum auglýsingum og kynningu á umræddum námskeiðum að um sé að ræða kennslu í Stott-Pilates svo uppfyllt séu ákvæði 21. gr. samkeppnislaga nr. 8/1993”:
,,Auglýsinganefnd telur að fyrir liggi að námskeið þau sem Hreyfing býður upp á séu afbrigði Pilates, svokallað Stott-Pilates, og er því ekki mótmælt af Hreyfingu. Auglýsinganefnd telur að það veiti neytendum villandi upplýsingar, sbr. ákvæði 21. gr. samkeppnislaga, að nota nafnið Pilates eitt og sér við kynningu námskeiðanna þegar í raun sé verið að kenna afbrigði þess. Í auglýsingunum verði að koma skýrt fram bæði í yfirskrift og meginmáli að um sé að ræða kennslu í Stott-Pilates.”



Árangur af PILATES
æfingakerfinu:

Betri líðan eftir 10 skipti
Betra útlit eftir 20 skipti
Nýr líkami eftir 30 skipti


Pilates æfingakerfið bætir:
orku og vellíðan
sveigjanleika, styrk og jafnvægi
líkamsstöðu
verki í baki, háls og öxlum
stress
gigtarverki
ónæmiskerfið



Upplýsingar og
tímapantanir í síma 553 0660
Pilates e-mail

Leiðbeinendur:
Liisa S.T Jóhannsson, C.P.I

Kolbrún Jónsdóttir C.P.I
Irina Linda Óskarsdóttir C.P.I
Jóhanna Maggý, nemi
s