Morgunblaðið 23. janúar 2004

Varist Pilates-eftirlíkingar
Breska tímaritið Health & Fitness sér ástæðu til þess í desemberútgáfunni 2003 að vara lesendur við fólki sem kallar sig leiðbeinendur í Pilates-æfingum eftir skyndikynni af þessu þekkta, alhliða líkamsræktarkerfi á einu helgarnámskeiði eða svo. Væntanlegir viðskiptavinir eru hvattir til þess að ganga úr skugga um að yfirlýstir Pilates-leiðbeinendur hafi tilskilin réttindi, þekkingu og reynslu og tryggingarnar sínar í góðu lagi. Það getur nefnilega verið beinlínis hættulegt að gera Pilates-æfingar undir stjórn fólks sem hvorki hefur faglegar forsendur né réttindi til slíks.
Því miður eiga varnaðarorð Health & Fitness fullt erindi við Íslendinga líka. Forráðamenn sumra líkamsræktarstöðva hér auglýsa Pilates-þjálfun án þess að blikna þó þar séu engir menntaðir og löggiltir Pilates-leiðbeinendur starfandi. Dæmi eru um líkamlega skaða hér á æfingum undir stjórn fólks sem skortir bæði þekkingu og réttindi. Því er ástæða til að taka undir með breska heilsutímaritinu: Varist Pilates-eftirlíkingar!
Pilates Studio við Suðurlandsbraut hefur verið rekið í 11 ár og þar starfa þrír af alls fjórum löggiltum Pilates-kennurum á Íslandi. Ég er eigandi fyrirtækisins, skráður rétthafi Pilates-nafnsins hérlendis og félagi í alþjóðlegum samtökum Pilates-kennara. Pilates-æfingarnar eru því hreint ekki nýlunda hér heldur grunnur að rótgróinni starfsemi sem hefur dafnað vel. Að þessu starfi er hins vegar vegið nú þegar sumar líkamsræktarstöðvar auglýsa Pilates-þjálfun án þess að hafa löggilta kennara í þjónustu sinni. Ástæða þess að stöðvarnar vilja skreyta sig þessum fjöðrum er augljóslega sú að Pilates er í tísku í Bandaríkjunum, og hróður þess hefur borist hingað með útbreiddum, erlendum tímaritum í líkamsrækt. Þetta er því talin ávísun á góðan bissness.
Ég myndi sannarlega fagna því manna mest ef löggiltum Pilates-kennurum hérlendis fjölgaði og iðkendum sömuleiðis, enda er afar jákvætt að sem flestir Íslendingar kynnist þessu góða líkamsræktarkerfi og stundi Pilates-æfingar. Vandinn er bara sá að meintir kennarar eða leiðbeinendur í greininni standa í fæstum tilvikum undir nafni. Þeir hafa aðeins haft skyndikynni af Pilates-kerfinu og raunar minna en það.
Menntun til að fá löggildingu sem Pilates-kennari tekur umtalsverðan tíma og kostar mikla peninga. Það veit ég af eigin reynslu. Fyrsti áfanginn er að taka a.m.k. 75 einkatíma og ná svokölluðu inter-mediate stigi (miðstigi í kerfinu) og kunna reiprennandi þær æfingar. Síðan þarf að gangast undir inntökupróf í skóla og standist nemandinn það taka við 600 tímar undir leiðsögn Master kennara, þriggja stiga námskeið og þrjú verkleg og skrifleg próf. Ferlið tekur venjulega 1-1 1/2ár og þá fyrst er mögulegt að nemandinn fái réttindi til að starfa sem löggiltur Pilates-kennari.
Hverjum dettur svo í hug að hægt sé að kalla sig Pilates-leiðbeinanda á Íslandi eftir að hafa horft á myndband eða verið í æfingum í fáein skipti eins og dæmi eru því miður um hér?
Pilates-líkamsræktarkerfið er kennt við frumkvöðul sinn, Þjóðverjann Joseph H. Pilates (1880-1967). Þar er lögð áhersla á samstillingu líkamans og rétta öndun. Gengið er út frá því að kviður, mjóbak og sitjandi séu þungamiðja líkamans og út frá henni hreyfi líkaminn sig frjálslega. Pilates-kerfið er fyrir alla þá sem vilja styrkja líkamann án þess að byggja upp vöðvamassa . Séu æfingar stundaðar reglulega styrkja þær vöðva og liðamót og koma í veg fyrir algeng meiðsli. Pilates-æfingar eru steitulosandi og orkugefandi. Fólk sem æfir reglulega eftir kerfinu ber sig betur en áður, hreyfir sig af meiri þokka, er vöðvastæltara og sefur betur. Pilates er kennt í einkatímum í sérhönnuðum æfingartækjum eða með gólfæfingum í hóptímum. En vel að merkja, aldrei eru fleiri en tíu í hverjum hópi.
Pilates-kerfið er þekkt í mörgum Evrópulöndum en er einkum útbreitt og vinsælt í Bandaríkjunum. Raunar má segja að Pilates sé í tísku vestan hafs um þessar mundir og hafi aðeins jóga ofan við sig á vinsældarlista líkamsræktarfólks. Kvikmyndastjörnur og annað frægt fólk stundar Pilates og fjölmiðlar sem sinna heilbrigðismálum og líkamsrækt birta ótal þætti og greinar um Pilates.
Ég sé mig knúna til að skrifa þessa grein og lýsa staðreyndum málsins vafningalaust. Það þarf einfaldlega að segja sannleikann til að gæta hagsmuna þess fólks sem leitar eftir Pilates-þjálfun á grundvelli auglýsinga líkamsræktarstöðva en er í raun að kaupa köttinn í sekknum, löglausa eftirlíkingu.

Eftir Liisu S.T. Johanson
löggiltan Pilates-kennara



Árangur af PILATES
æfingakerfinu:

Betri líðan eftir 10 skipti
Betra útlit eftir 20 skipti
Nýr líkami eftir 30 skipti


Pilates æfingakerfið bætir:
orku og vellíðan
sveigjanleika, styrk og jafnvægi
líkamsstöðu
verki í baki, háls og öxlum
stress
gigtarverki
ónæmiskerfið



Upplýsingar og
tímapantanir í síma 553 0660
Pilates e-mail

Leiðbeinendur:
Liisa S.T Jóhannsson, C.P.I

Kolbrún Jónsdóttir C.P.I
Irina Linda Óskarsdóttir C.P.I
Jóhanna Maggý, nemi

s