Hvað er Pilates?
Skilgreining Josephs Pilates á ímynd hreystinnar,
sett fram 1945, lýsir í senn árangrinum
af hans eigin lífsstarfi: maður sem hefur
þjálfað líkama sinn til fullkomins
samræmis og þroskað heilbrigðan huga
og skilar sínum daglegu störfum þess vegna
fljótt og vel, af ungæðislegum lífsþrótti
og gleði.
Í pilates-æfingakerfinu eru yfir 500 æfingar
og fimm mismunandi æfingatæki. Kerfið heldur
iðkendum við efnið, er hvetjandi og skemmtilegt
og þrauthugsað til að styrkja heilbrigðan
líkama og gera hann að einni samræmdri
heild. Eftir hvern tíma er fólk afslappað,
endurnært og fullt orku. Kerfið hefur einnig reynst
vel til endurhæfingar. Pilates býr fólk
undir skurðaðgerðir og barnsfæðingu
og stuðlar að skjótari bata. Oft dregur úr
langvinnum verkjum og magnleysi eða það hverfur
með öllu, enda er boðið upp á pilates-æfingar
á sjúkrastofnunum, hjá sjúkraþjálfurum
og í einkareknum æfingastöðvum um
heim allan.
Aðferðir pilates-kerfisins til að stæla
og styrkja líkamann hafa rutt sér til rúms
í hundruðum æfingastöðva vítt
og breitt um heiminn.
Pilates-æfingakerfið
Pilates byggist á kerfisbundnum og þaulhugsuðum
æfingum.
1. Á fyrsta stigi er byggður upp kjarnastyrkur
í kviðvöðvum og vöðvum sem
halda við mænuna. Rekja má flesta langvinna
bakverki til veikleika og ónógs stöðugleika
í þessum kjarna vöðvakerfisins.
2. Á næsta stigi er tekið til við
að byggja upp jafnvægi í styrk og teygjanleika
vöðva er umlykja liði. Teygt er á stuttum
vöðvum og slappir vöðvar styrktir. Þetta
stuðlar að virkari liðamótum og vinnur
gegn liðverkjum og öðrum vandamálum.
Á þessum tveim fyrstu stigum eru skekkjur einnig
leiðréttar.
3. Þegar jafnvægi og stöðugleika
er náð er sífellt erfiðari æfingum
smám saman bætt við prógrammið
og þannig fer líkamanum stöðugt fram,
í átt að meiri styrk, sveigjanleika og
samræmi.
Algengar
spurningar um PILATES
Tilbaka
á forsíðu