Algengar spurningar varðandi PILATES
1. Að hvaða leyti er Pilates frábrugðið
öðrum æfingakerfum?
Hver æfing virkjar kviðvöðvana og aðferðin
leggur áherslu á að styrkja svæðið
sem kallað er powerhouse (aflstöðin)
kviðinn, mjóhrygginn, ytri og innri lærvöðvana
og rassinn. Markmið Pilates er að lengja, styrkja
og stæla líkamann án þess að
vöðvarnir verði fyrirferðarmeiri.
2. Eru einungis notuð tæki í Pilates?
Nei. Joseph H. Pilates hannaði öll þau tæki
sem byggjast á gormamótstöðu þannig
að þau væru notuð með gólfæfingakerfinu
og þess vegna er kerfið í heild alltaf
samspil tækja annars vegar Reformer, Wunda
Chair, High Chair, Ladder Barrel, Spine Corrector, Half
Barrel, Cadillac og gólfæfinga hins
vegar.
3. Hvers vegna er svo lítið um að æfingar
séu endurteknar?
Minna ER meira! Hver Pilates-æfing er aðeins gerð
þrisvar, fimm eða tíu sinnum. Æfingarnar
eru þaulhugsaðar þannig að þær
skili sem mestum og nákvæmlega réttum
árangri og það gerir endurtekninguna ónauðsynlega.
4. Hvers vegna er litið á Pilates sem þjálfunarkerfi
fyrir líkama og huga?
Pilates er þjálfunarkerfi byggt á greind.
Hugurinn er sístarfandi gegnum sérhannað
kerfi æfinga og því engin hætta
á að hann fari á stefnulaust flakk við
endalausar endurtekningar. Meðan þú ert
með hugann við það hvernig líkaminn
hreyfist má segja að þú stundir
fullkomna hug- og líkamsrækt.
5. Hversu fljótt má búast við að
árangur fari að skila sér?
Það er nokkuð einstaklingsbundið en þó
finna flestir til aukinnar vellíðunar eftir aðeins
fáeina tíma. Ef þú sinnir æfingunum
jafnt og þétt öðlastu aukinn styrk
á powerhouse-svæðinu og færist
nær því marki að komast í
verulega gott form andlega og líkamlega.
6.
Þegar ég horfi á fólk gera Pilates-æfingar
finnst mér eins og áreynslan sé ekki
nógu mikil fyrir mig. Fæ ég almennilega
líkamsrækt út úr Pilates?
Þegar fólk byrjar að stunda Pilates þarf
líkami flestra að tileinka sér mikið
af nýjum upplýsingum. Pilates er þess
vegna fjarri því að vera í ætt
við eróbikktækni framan af, en það
getur breyst eftir að komið er á millistig
og framhaldsstig, þegar hreyfingarnar fara að
verða kunnuglegri. Þar að auki sameinar Pilates
teygjur og styrkingu þar sem gormar og eigin
líkamsþungi er notað sem mótstaða
á þann hátt að það
kann að virðast auðveldara en önnur æfingakerfi,
en staðreyndin er sú að áreynslan
er meiri og nær dýpra inn í vöðvana.
7.
Ég hef oft orðið fyrir meiðslum og líkamlegum
áföllum um ævina.Getur
Pilates hjálpað mér?
Já, alveg örugglega. Til eru margar sögur
af því hvernig Pilates-æfingakerfið
hefur hjálpað fólki að ráða
bót á gömlum og nýjum meiðslum.
Pilates-leiðbeinendur hafa haft samstarf við sjúkraþjálfara
og kírópraktora, sem hafa liðsinnt við
meðferð meiðsla í mjúkvefjum og
hjálpað fólki að ná sér
af margvíslegum líkamlegum vandamálum.
8.
Ætti ég að fara í einkatíma?
Já. Fólk með rétta og góða
þjálfun í Pilates hefur lært að
greina og skilja sérstöðu hvers mannslíkama,
réttar hreyfingar og rétta líkamsstöðu.
Það hefur lært að greina ójafnvægi
í vöðvum, sem getur verið sprottið
af einhæfum hreyfingum, meiðslum eða öðrum
aðferðum í líkamsrækt, og kann
að leiðrétta þetta ójafnvægi.
Það er þess vegna sem Pilates er skilar
svo góðum árangri!
Kennari sem kennir í hóptímum hefur
ekki möguleika til að greina og leiðrétta
á sama hátt, né heldur að þróa
sérstakt æfingaprógramm fyrir hvern
og einn. Þess vegna finna nemendurnir það
aldrei á sjálfum sér hvað hið
upprunalega Pilates-kerfi getur raunverulega gert.
9. Hvernig fer ég að því að
finna hæfan Pilates-kennara?
Það verður sífellt erfiðara að
finna góða kennara. Til ársins 1998 var
Pilates skráð vörumerki í
eigu hins upprunalega Pilates Studio í New
York. Þeir einir sem höfðu sótt yfirgripsmikið
þjálfunarnámskeið máttu nota
heitið Pilates yfir æfingakerfi sín.
Því miður gerðist það svo
árið 1999 að Pilates Studio í
New York missti einkaréttinn á Pilates-vörumerkinu
og nú getur í rauninni hver sem er í
Ameríku notað heitið Pilates
til að lýsa æfingakerfi sínu
það útskýrir hina skyndilegu Pilates-bylgju
sem reis árið 2000.
Meðan Joe Pilates lifði krafðist hann þess
að nemendur sínir stunduðu nám í
10 ár áður en þeir tækju til
við að kenna hina miklu aðferðafræði
hans. Nú þykjast einhverjir geta útskrifað
kennara eftir tveggja vikna nám!
Til að njóta kosta hins eina sanna Pilates-kerfis
er best að vera hjá kennara með réttindi
frá viðurkenndri Pilates-æfingastöð
þar sem þjálfunarnám er traust.
Þess vegna er rétt að spyrja þjálfarann
hvaða kröfur hann/hún hafi þurft að
uppfylla til að öðlast réttindi og hver
sé bakgrunnur hans/hennar í Pilates sérstaklega,
ekki aðeins í dansi, jóga eða annarri
þjálfun. Varast skal fólk sem staðhæfir
að það sé með réttindi í
Pilates-gólfæfingakerfi eða
kenni æfingar byggðar á Pilates
þar sem það hefur ekki hlotið fullkomna
þjálfun eða reynslu í upprunalegri
Pilates-aðferð.
Tilbaka
á forsíðu