Myndir
Greinar

 

Pilates hjálpar við verkjum í mjóbaki

Verkir í mjóbaki eru algengasta orsök þess að fólk verður óvinnufært í Bandaríkjunum, samkvæmt upplýsingum National Institute of Neurological Disorders and Stroke. Einungis höfuðverkur er útbreiddari þegar bornir eru saman kvillar sem rekja má til taugakerfisins. Fagfólk sem vinnur við að leiðbeina fólki um andlega og líkamlega þjálfun kemst varla hjá því að rekast á fjölda fólks sem þjáist af bakverkjum í mismiklum mæli.

Nýlegar rannsóknir sýna fram á að Pilates hafi góð áhrif gegn verkjum í mjóbaki. Niðurstöður lítillar samanburðarrannsóknar á fólki sem valið var af handahófi birtust í Journal of Orthopaedic & Sports Physical Therapy (2006; 36 [7], 472–84). Þær sýndu að þátttakendur sem stunduðu Pilates-þjálfun í 4 vikur fundu til minni verkja en þeir sem voru í hefðbundnu meðferðarprógrammi.

Með hliðsjón af vaxandi vinsældum Pilates sem meðferðarúrræðis ákváðu rannsakendur frá Queen’s-háskólanum í Kingston í Ontario að komast að því hvort Pilates-æfingar hefðu þau áhrif að ástand sjúklinganna batnaði. Til þess völdu þér af handahófi 39 virka einstaklinga á aldrinum 20–55 ára sem allir voru með langvinna verki í mjóbaki. Þátttakendur voru síðan ýmist settir í Pilates-hóp eða samanburðarhóp. Pilates-hópurinn stundaði æfingar með Pilates-tækjum en samanburðarhópurinn fékk venjulega meðferð eins og fólki er boðið upp á þegar það leitar sér læknishjálpar vegna verkja í mjóbaki. (Þessi „venjulega meðferð“ fól meðal annars í sér viðtal við lækni og aðra fagmenn og sérfræðinga í heilbrigðisgeiranum.)
Prófanir eftir á sýndu að þeir sem tilheyrðu Pilates-hópnum voru í betra ástandi til að sinna daglegum störfum og dregið hafði meira úr verkjum hjá þeim en samanburðarhópnum. Munurinn á hópunum var marktækur. Ári síðar var líkamlegur bati Pilates-þátttakendanna jafngóður og áður.
Þýðing úr IDEA Fitness Journal, nóv.–des. 2006

Mbl. Þriðjudaginn 28. nóvember, 2006 - Daglegt líf

Pilates getur hjálpað
Parkinson-sjúklingum

Engar sérstakar rannsóknir hafa verið gerðar sem sanna að Pilates-æfingar geri Parkinson-sjúklingum gagn en vaxandi fjöldi sjúklinga segir að slíkar æfingar hafi bætt heilsuna.

Engar sérstakar rannsóknir hafa verið gerðar sem sanna að Pilates-æfingar geri Parkinson-sjúklingum gagn en vaxandi fjöldi sjúklinga segir að slíkar æfingar hafi bætt heilsuna. "Mér finnst þetta frábært," er haft eftir Karen Smith, sem er 62 ára, á vefnum MSNBC.com. "Með Pilates-æfingum þjálfa ég vöðva sem annars fengju enga þjálfun."
Parkinson-sjúkdómurinn er hrörnunarsjúkdómur sem hefur áhrif á hreyfigetu fólks. Algengustu einkennin eru skjálfti, hægar hreyfingar, stirðleiki og jafnvægisleysi.Eftir að prófað var að halda Pilates-námskeið í Parkinson-miðstöðinni í Oregon fyrr á þessu ári kom í ljós að sjúklingar fengu nokkra bót. Þá var ákveðið að hafa Pilates-tíma fyrir Parkinson-sjúklinga reglulega tvisvar í viku og strax myndaðist biðlisti. Víðar í Bandaríkjunum hafa Pilates-þjálfarar tekið það upp að vera með námskeið fyrir slíka sjúklinga."Þetta gætu í raun verið hvaða æfingar sem er," segir Kristi Sesso, sem á og rekur Pilates-æfingastöð í Englewood. "En Pilates-æfingar eru einmitt sérstaklega góðar."Pilates-þjálfarar segja að grunnur æfinganna, sem er að auka styrk vöðvanna og bæta jafnvægi og hreyfigetu, sé sérstaklega góður til að takast á við afleiðingar Parkinson-sjúkdómsins hjá sumum sjúklingum."Mig dreymdi aldrei um að ég gæti tekið þátt í Pilates eða neinu slíku," segir Greg Moore, 59 ára, sem var greindur með Parkinson fyrir 17 árum og er nýbyrjaður að æfa. "Núna geri ég mér hins vegar grein fyrir því hversu stirður og hnýttur ég er," bætir hann við."Til eru rannsóknir sem sýna að æfingar geta dregið úr einkennum Parkinson," segir Michael S. Okun, stjórnandi hjá læknamiðstöð í Bandaríkjunum. "En það þarf að rannsaka þetta miklu betur," staðhæfir hann jafnframt. "Ég segi skjólstæðingum mínum að eins sé með æfingar og lyf, ef þær eru stundaðar mjög reglulega, skili þær góðum árangri," segir Okun.Parkinson-sjúklingar sem rætt hefur verið við segja að Pilates-æfingar séu ekki erfiðar og það geri þær mun aðgengilegri en ella. Þeir segja að auk þess finni þeir stuðning í því að hitta aðra Parkinson-sjúklinga í jákvæðu umhverfi.

Margir Parkinson-sjúklingar þjást af þunglyndi og sumir segja að Pilates hafi líka hjálpað þeim í baráttunni við það og oft séu æfingarnar ekki minna í þágu andlegu hliðarinnar en hinnar líkamlegu.

"Að finnast að maður geti heilað sjálfan sig að einhverju leyti er virkilega mikilvægt," segir einn sjúklinganna, John White, sem var áður hlaupa- og glímuþjálfari, og bætir því við að Parkinson sé sjö daga vinna. Hann segist æfa reglulega og það geri honum kleift að stunda golf, fjallgöngur og hlaup.


Vikan 38. tbl. 2005.
Texi: Ásta Andrésdóttir

Viðtal við Valgerði Ólafsdóttur sem stundar Pilates hjá Liisu Johannsson.

Pilates – nýtt líf

Hvernig fer Pilates fram?
Æfingarnar fara fram á bekk og byggja á því að styrkja miðju líkamans þannig að maður lærir smám saman að gera allar æfingarnar út frá miðjunni. Auk þess eru þetta gífurlega góðar teygju- og styrktaræfingar.

Hvað kom til að þú valdir Pilates?

Ég hafði heyrt að Pilates væri það besta sem til væri ef um einhver líkamleg veikindi eða meiðsl væri að ræða. Ég greindist með liðagigt árið 1993 og hef þurft að lifa með þeim sjúkdómi síðan. Ég ákvað fyrir þremur árum að breyta um mataræði og gera allt sem í mínu valdi stæði til að takast á við sjúkdóminn og hefur raunar aldrei liðið betur en síðastliðin ár.

Hversu lengi hefurðu stundað Pilates?

Ég hef stundað Pilates í tvö og hálft ár og æfi tvisvar til þrisvar sinnum í viku. Ég er í einkatímum í Pilates Studio á Suðurlandsbrautinni. Fyrst var ég hjá Jóhanni Björgvinssyni en stunda núna þjálfun hjá Liisu Johannsson.

Finnurðu mun á þér eftir að þú byrjaðir?

Ég finn mjög mikinn mun á mér til hins betra. Ég finn líka fyrir því þegar ég sleppi úr tímum eða fer í frí. Ég vil meina að ég hafi fengið nýtt líf með þessari þjálfun. Ég hef ekki eins mikla verki, og stundum enga, ég beiti líkamanum öðruvísi og hef miklu meiri styrk.

Hefurðu stundað aðrar tegundir líkamsræktar?

Ég hef stundað líkamsrækt í mörg ár og verið hjá einkaþjálfurum en mér líður mun betur eftir að ég kynntist Pilates og hætti öllum lyftingum. Mér finnst mjög gaman að dansa og síðan geng ég mikið
.


Algengar spurningar varðandi PILATES

1. Að hvaða leyti er Pilates frábrugðið öðrum æfingakerfum?

Hver æfing virkjar kviðvöðvana og aðferðin leggur áherslu á að styrkja svæðið sem kallað er ‘powerhouse’ (aflstöðin) – kviðinn, mjóhrygginn, ytri og innri lærvöðvana og rassinn. Markmið Pilates er að lengja, styrkja og stæla líkamann án þess að vöðvarnir verði fyrirferðarmeiri.

2. Eru einungis notuð tæki í Pilates?

Nei. Joseph H. Pilates hannaði öll þau tæki sem byggjast á gormamótstöðu þannig að þau væru notuð með gólfæfingakerfinu og þess vegna er kerfið í heild alltaf samspil tækja annars vegar – Reformer, Wunda Chair, High Chair, Ladder Barrel, Spine Corrector, Half Barrel, Cadillac – og gólfæfinga hins vegar.

3. Hvers vegna er svo lítið um að æfingar séu endurteknar?

Minna ER meira! Hver Pilates-æfing er aðeins gerð þrisvar, fimm eða tíu sinnum. Æfingarnar eru þaulhugsaðar þannig að þær skili sem mestum og nákvæmlega réttum árangri og það gerir endurtekninguna ónauðsynlega.

4. Hvers vegna er litið á Pilates sem þjálfunarkerfi fyrir líkama og huga?

Pilates er þjálfunarkerfi byggt á greind. Hugurinn er sístarfandi gegnum sérhannað kerfi æfinga og því engin hætta á að hann fari á stefnulaust flakk við endalausar endurtekningar. Meðan þú ert með hugann við það hvernig líkaminn hreyfist má segja að þú stundir fullkomna hug- og líkamsrækt.


Fleiri svör við algengum spurningum um PILATES


Greinar sem birst hafa í morgunblaðinu um Pilates:

Til fjölmiðla 19. júlí 2004
Samkeppnisráð setur ofan í við
Hreyfingu vegna villandi auglýsinga
Miðvikudaginn 4. febrúar, 2004
Yfirlýsing birt í Morgunblaðinu

Morgunblaðið 23. janúar 2004

Varist Pilates-eftirlíkingar



Tenglar um Pilates:
romanaspilates.com
classicalpilates.net


 


Árangur af PILATES
æfingakerfinu:

Betri líðan eftir 10 skipti
Betra útlit eftir 20 skipti
Nýr líkami eftir 30 skipti


Pilates æfingakerfið bætir:
orku og vellíðan
sveigjanleika, styrk og jafnvægi
líkamsstöðu
verki í baki, háls og öxlum
stress
gigtarverki
ónæmiskerfið



Upplýsingar og
tímapantanir í síma 553 0660
Pilates e-mail

Leiðbeinendur:
Liisa S.T Jóhannsson, C.P.I

Kolbrún Jónsdóttir C.P.I
Ástrós Gunnarsdóttir C.P.I

s