|
|
|
We retire too early and we die too young, our prime
of life should be in the 70s and old age should not
come until we´re almost 100.
Joseph Hubertus Pilates (1880 1967)
Joseph H. Pilates fæddist í nágrenni
Dusseldorf í Þýskalandi árið
1880. Hann var veikburða barn og þjáðist
af astma, beinkröm og gigtarsótt en helgaði
líf sitt því að verða líkamlega
sterkur. Á æskuárum stundaði Pilates
vaxtarrækt, köfun, hnefaleika og fimleika og
varð afburðafær. Þegar hann var fjórtán
ára var hann svo vel á sig kominn að hann
var fenginn til að sitja fyrir við gerð korta
um vöðva- og beinabyggingu.
Árið 1912 fluttist Pilates til Englands þar
sem hann vann fyrst fyrir sér sem hnefaleikamaður
og listamaður í fjölleikahúsi og
þjálfaði enska leynilögreglumenn í
sjálfsvörn. Eftir að fyrri heimsstyrjöldin
braust út tveimur árum síðar var
litið á hann sem óvin og hann var settur
í fangabúðir í Lancaster og síðar
á eyjunni Mön ásamt öðrum Þjóðverjum.
Pilates stundaði hjúkrun í búðunum
og þjálfaði aðra fanga í líkamsræktaræfingum
sem hann hafði þróað. Hann hlaut mikið
lof fyrir þegar enginn fanganna beið lægri
hlut í inflúensufaraldri sem mörg þúsund
manna dóu úr í Englandi árið
1918.
Eftir stríðið hélt Pilates áfram
með þjálfunarkerfi sitt í Hamborg
í Þýskalandi þar sem hann þróaði
aðferðir sínar hjá lögregluliði
borgarinnar. Árið 1926 þegar hann var bepinn
um að þjálfa þýska herinn
ákvað hann að flytja úr landi og fluttist
til Bandaríkjanna. Um borð í skipinu til
Ameríku kynntist hann Klöru sem síðar
varð eiginkona hans. Þegar á leiðarenda
var komið settu þau á fót æfinga
stúdíó í New York. Joe og eiginkona
hans þjálfuðu sjálf skjólstæðinga
sína langt fram á sjöunda áratuginn.
Dansarar aðhylltust brátt aðferðir Pilates
sem hann kallaði contrology (samræmda
vöðvastjórnun). Frægir dansarar, eins
og Martha Graham og George Balanchine, urðu einlægir
aðdáendur hans og sendu nemendur sína
til hans í þjálfun. Síðar
meir fóru íþróttamenn og aðrir
listamenn að tileinka sér aðferðir hans
við þjálfun sína.
Pilates iðkaði það sem hann boðaði.
Hann varð langlífur og hraustur alla tíð.
Hann lést árið 1967 þá 87
ára gamall. Nú á dögum nota dansflokkar,
leikhúshópar, nemendur í fjöllistaskólum
og háskólum, atvinnuíþróttalið,
heilsuræktarstöðvar og aðrir áhugamenn
um líkamsrækt um víða veröld
aðferðir hans og æfingar. Æfingakerfið
nýtur sífellt meiri vinsælda meðal
almennings.
|
|
Árangur af PILATES
æfingakerfinu:
Betri líðan
eftir 10 skipti
Betra útlit eftir 20 skipti
Nýr líkami eftir 30 skipti
Pilates
æfingakerfið bætir:
orku og vellíðan
sveigjanleika, styrk og jafnvægi
líkamsstöðu
verki í baki, háls og öxlum
stress
gigtarverki
ónæmiskerfið
Upplýsingar og
tímapantanir í síma 553 0660
Pilates
e-mail
Leiðbeinendur:
Liisa S.T Jóhannsson, C.P.I
Kolbrún Jónsdóttir C.P.I
Irina Linda Óskarsdóttir C.P.I
Jóhanna Maggý, nemi
|